Vefurinn opnaður
Share
Forsaga hugmyndarinnar er að fyrir einum til tveimur mánuðum síðan ákvað ég að selja PS3 tölvuna mína þar sem ég var löngu hættur að nota hana. Aukið lausafé var síðan ekkert slæmt heldur. Til að finna verð á vélina kíkti ég psx.is sem er leikjatölvuvefur , barnaland.is og á smáauglýsingahluta mbl.is og visir.is fréttavefanna. Það að þurfa að flakka á milli þessara vefa bara til að sjá hvað menn voru að selja þessar vélar á fannst mér of mikið – svo hugmyndin fæddist.

Uppkast að útliti og eiginleikum
Vefurinn var opnaður í litlum vinahóp og helstu eiginleikar vefsins; leitin sjálf og sjálfvirkur innlestur auglýsinga prófaðir. Allt gekk þetta vel fyrir sig svo lénið var keypt og vefurinn settur í loftið.