Áskrift að leitarorði
Notendur síðunnar geta nú orðið áskrifendur að leitarorðum. Segjum sem svo að þú sért að leita þér að Playstation 3 tölvu og hafir því áhuga á að fá tilkynningu þegar nýjar auglýsingar sem innihalda “ps3″ birtast á vefnum.

Þú byrjar að leita að ps3

Fyllir út netfangið og gerist áskrifandi
Þú leitar fyrst að orðinu sem þú villt fá tilkynningar um, fyllir síðan út netfangið og færð póst til að staðfesta skráninguna. Eftir það færðu póst þegar auglýsingar með umbeðnu leitarorði birtast á vefnum og getur því verið með þeim fyrstu til að hafa samband við seljandann.
Þessi eiginleiki er í prufukeyrslu svo það geta einhverjir hnökrar verið á útfærslunni hjá okkur. Við höfum þó enn ekki rekist á neitt vandamál enn og þætti því vænt um ef þið létuð okkur vita rekist þið á einhver.